Vinstri græn - Allt annað líf!
Dagsetning
23. febrúar 2012
20.05.2008 20:03:35 / vgakranes

Velkomin heim.

Fyrir nokkrum árum hlýddi ég á ræðu Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs á samkomu Norðmanna og Íslendinga í Noregi.  Þar sagði  hann meðal  annars frá því hve honum fannst það áhrifamikið þegar hann kom til Íslands í fyrsta sinn og flugfreyjan sagði í hátalarann eftir lendingu: “ Góðir Íslendingar, velkomin heim”. Glöggt er gests augað, aldrei hafði ég hugsað út í þetta.

Hér á landi erum við flest alin upp við  öryggi og jafnframt frelsi.  Okkar þjóðfélag er ekki gallalaust en við erum meðal ríkustu þjóða heims, heilbrigðisástand er gott, öll börn ganga í skóla, menntunarstig er hátt og konur hafa hér sömu lagalegu  réttindi og karlar. Hér ríkir trúfrelsi og skoðanafrelsi almennt.  Þrátt fyrir þetta  erum  við ekki laus við félagsleg vandamál en þeim verður aldrei útrýmt í mannlegu samfélagi.  Oft er sagt að hver sé sinnar gæfu smiður en málið er flóknara en svo.  Við höfum svo sannarlega ekki nema að litlu  leyti stjórn á okkar aðstæðum og lífi.  Enginn hefur til dæmis stjórn á því hvar hann fæðist í heiminum. Börnin eru framtíðin og til að skapa betri heim og góða jarðarbúa þarf fyrst og fremst að hlúa að börnunum.

 Langflestir vilja búa í sínu heimalandi ef mögulegt er  en það er víða misrétti, hungur, fátækt og stríð.  Fjöldi fólks hefur af ýmsum ástæðum þurft að flýja sitt heimaland og er innilokað í flóttamannabúðum, vegabréfslaust.  Innan girðinganna alast  upp börn sem fangar, án heimalands. Sem betur fer eru til mannúðarsamtök í heiminum sem vinna við flóttamannahjálp og  í samvinnu við stjórnvöld ríkja koma  því til leiðar að fólk er frelsað með því að veita því vegabréf, nýtt ríkisfang og tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi í nýju heimalandi.

Íslendingar hafa ekki sinnt þessu málefni í jafn miklum mæli og önnur lönd sem við berum okkur gjarnan saman við og ég var oft spurð að því í Noregi þegar ég bjó þar hvers vegna Íslendingar taki á móti  svo fáum flóttamönnum. Ég gat ekki svarað því.

Landlausum bræðrum og systrum í alþjóðasamfélaginu er þeim ríkjum sem betur mega sín skylt að hjálpa.  Okkar vandamál eru smávægileg miðað við þeirra. 

Íslensk stjórnvöld hafa beðið Akranesbæ að  taka á móti næsta hópi flóttamanna. Akranes er einn af stærstu kaupstöðum landsins en hefur ekki áður verið beðinn um að taka slíkt verkefni að sér. Samkvæmt ákvörðun utanríkis- og félagsmálaráðuneytis taka Íslendingar þátt í verkefni sem kallast “women in need” og veita hæli einstæðum mæðrum með börn. Þetta er samvinna utanríkisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, Rauða krossins og sveitarfélagsins sem tekur á móti flóttafólkinu í hvert skipti. Sérstök fjárveiting frá ríkinu stendur undir kostnaðinum við móttöku flóttamannanna. Áætlað er að taka á móti 25-30 manns í senn, tvö ár í röð. Í hverjum hópi verða um 10 konur og 15-20 börn. Fjölskyldurnar fá hjálp og stuðning við að byggja upp heimili, læra íslensku, stunda vinnu og skóla osfrv.  Þau fá íslenskt vegabréf og geta þegar fram líða stundir lifað sínu lífi við leik og störf eins og aðrir sjálfstæðir,  frjálsir einstaklingar og  flutt sig um set innanlands eða utan ef svo ber undir.

Akurnesingum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og flest gleðjumst við yfir því.  Við erum aflögufær.  Móttaka  flóttamanna hingað skerðir ekki þjónustu við íbúana sem fyrir eru.

Tökum vel á móti konunum og börnum þeirra og segjum:  Velkomin heim.

 

Rún Halldórsdóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 17:26:33 / vgakranes

Lýðræðið verðlagt

Endurtekið hefur meirihluti bæjarstjórnar Akraness hafnað tillögum minnihlutans þess efnis að bæjarfulltrúar allra flokka geti setið bæjarráðsfundi. Nú síðast mjög hógværri tillögu á bæjarráðsfundi 10.janúar.

Í bæjarstjórn Akraness eiga sæti 9 fulltrúar. Bæjarstjórn fundar 2. og 4. þriðjudag hvers mánaðar. Bæjarráð fundar vikulega og þar sitja 3 bæjarfulltrúar, 2 frá meirihluta og einn frá minnihluta. Bæjarstjóri og bæjarritari sitja líka fundi bæjarráðs en einungis kjörnir bæjarfulltrúar eiga þar atkvæðisrétt.

Í síðustu bæjarstjórnarkosningum fengu fimm flokkar kjörna bæjarfulltrúa. Meirihluti var myndaður af Sjálfstæðismönnum (37% fylgi, 4 bæjarfulltrúar) og Frjálslyndum og óháðum (9.3% fylgi, 1 bæjarfulltrúi) en í minnihluta sitja Samfylking (24.2% fylgi, 2 bæjarfulltrúar), Vinstri Græn (13.9% fylgi, 1 bæjarfulltrúi) og Framsókn (12.8 % fylgi, 1 bæjarfulltrúi). Minnt skal á að núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra hefur einungis 46.3% bæjarbúa á bakvið sig samkvæmt niðurstöðum síðustu kosninga.

Meðal okkar bæjarfulltrúa í minnihlutanum er ágætt samstarf og um hefur samist að hver flokkur (Samfylking, Framsókn og VG) sjái um að skipa fulltrúa minnihlutans í bæjarráði eitt ár í senn. Bæjarráðsfulltrúinn gerir sitt besta til að upplýsa aðra minnihlutafulltrúa um bæjarráðsfundina en við tilheyrum ekki sama flokki og hver flokkur heldur sína eigin bæjarmálafundi fyrir hvern bæjarstjórnarfund. Það gefur auga leið að þeir fundir eru markvissari ef fundina situr bæjarfulltrúi sem hefur verið á vikulegum bæjarráðsfundum og getur upplýst sína samflokksmenn um gang mála.

Í bæjarmálasamþykkt sem tekur mið af sveitarstjórnarlögum stendur að bæjarstjórn geti heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétti.

Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétti þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa (IV. kafli 44. gr.).

Á sumrin sitja því allir flokkar í bæjarráði en meirihluti bæjarstjórnar hefur ekki viljað nýta þessa heimild sem er til þess að gefa öllum flokkum í bæjarstjórn Akraness aðild að bæjarráði allt árið.

Til fróðleiks má segja frá því hvernig málum er háttað í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Þar sitja 11 í bæjarstjórn, 7 frá Samfylkingu, 3 frá Sjálfstæðisflokki og 1 frá VG. Í þeirra bæjarráði eru 5 fulltrúar, Samfylking situr við stjórnvölinn og á meirihlutann.

Samfylking og Sjálfstæðismenn skipa bæjarráð en fulltrúi VG situr sem áheyrnarfulltrúi bæði í bæjarráði og framkvæmdaráði með málfrelsi og tillögurétti og fær greitt fyrir þessa fundarsetu. Þarna eru lýðræðisleg vinnubrögð í hávegum höfð.

Akurnesingar kusu 5 flokka í bæjarstjórn í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Það er eðlilegt að hlíta dómi kjósenda og leyfa röddum allra flokka að heyrast sem víðast í ráðum og nefndum. Þetta er greinilega ekki skoðun meirihlutans sem nú stjórnar á Akranesi þar sem tillögum okkar minnihlutafulltrúanna um áheyrnarfulltrúa í bæjarráð hefur endurtekið verið hafnað. Fyrst voru rökin þau að það yrði of dýrt fyrir bæjarfélagið, myndi þýða aukinn launakostnað til bæjarfulltrúa um samtals 4 milljónir á ári. Þannig má segja að lýðræðið hafi verið verðlagt.

Þegar hinsvegar borin var upp tillaga um seturétt kauplaust var því líka hafnað. Í fundargerð bæjarráðs frá 10. jan. segir: “Meirihluti bæjarráðs getur ekki orðið við tillögunni enda fái bæjarfulltrúar allir sömu gögn og sama aðgang að starfsmönnum bæjarins og niðurstaða bæjarráðs liggur fyrir strax daginn eftir fund”. Þetta er  útúrsnúningur þar sem fundargerðir bæjarráðs eru mjög stuttaralegar og ekki gott að átta sig á hvað þar hefur farið fram einungis með lestri fundargerða.

Eins og málum er nú háttað er tveimur flokkum haldið utan bæjarráðs á hverjum tíma.
Það er ekki lýðræðislegt og stuðlar ekki að opinni stjórnsýslu.

Rún Halldórsdóttir
Bæjarfulltrúi Vinstri Grænna á Akranesi

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 12:33:12 / vgakranes

Hvalfjarðargöng- Þjóðvegur án veggjalda

Ég ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Vinstri grænna hef lagt fram á Alþingi tillögu um að veggjald um Hvalfjarðargöng verði fellt niður eigi síðar en 1. júní 2008. Samgönguráðherra og fjármálaráðherra verði falið að semja við Spöl ehf um yfirtöku á skyldum fyrirtækisins og greiðslu árlegs kostnaðar.

 

 

Mikil samgöngubótMeð opnun Hvalfjarðarganga þann 11. júlí 1998 varð að veruleika samgöngumannvirki sem ekki var á dagskrá af hálfu ríkissjóðs og framkvæmdin var ekki á þágildandi samgönguáætlun. Spölur ehf. vann að verkefninu á grundvelli sérstakra laga og samnings við ríkissjóð sem heimiluðu félaginu að fjármagna, byggja og reka Hvalfjarðargöng. Opinberir aðilar áttu og eiga meirihluta í Speli ehf. og kveðið er á um að ríkinu verði afhent göngin til eignar þegar þau hafa verið borguð upp, sem gert var ráð fyrir að yrði á 20 árum.

Öllum er kunnugt hvernig félaginu hefur tekist að uppfylla þau markmið sem sett voru í upphafi. Árangurinn af starfi félagsins er sá að umferð hefur aukist verulega milli höfuðborgarsvæðisins og Vesturlands og jákvæð áhrif vegtengingarinnar er langt umfram væntingar. Aukin umferð hefur gefið meiri tekjur en spáð var og það hefur gert mögulegt að lækka veggjöldin og sömuleiðis var árið 2005 samið um endurfjármögnun lána á hagstæðari kjörum.  Að óbreyttu mun Spölur hafa greitt lán sín að fullu 2018 og göngin þá renna til ríkissjóðs eins og samningar og lög gera ráð fyrir. 

Hvalfjarðargöngin eru ekki lengur valÍ upphafi var gengið út frá því að vegfarendur hefðu val um að aka Hvalfjarðargöng eða Hvalfjörðinn. Reynslan er sú að vel yfir 90% vegfarenda nota Hvalfjarðargöng og líta svo á að göngin séu eðlilegur hluti af vegakerfi landsmanna. Þrátt fyrir að Hvalfjarðargöng hafi verið byggð á ákveðnum forsendum um að veggjald greiddi upp stofnkostnað þá hafa forsendur breyst að því leyti að göngin eru eina vegamannvirkið á Íslandi þar sem sérstakri gjaldtöku er beitt. Jafnræðissjónarmið kalla því á að gjaldtöku þessari verði aflétt.

Málefni Hvalfjarðarganga voru mjög til umræðu í aðdraganda síðustu alþingiskosninga og var þá einkum vakin athygli á því hversu mikil mismunun fælist í því fyrirkomulagi að innheimta veggjöld í Hvalfjarðargöngum, einum samgöngumannvirkja.

Afnám gjaldtökunnar

Ýmsar leiðir koma til greina til að ná því markmiði að gera umferð um göngin gjaldfrjáls. En að mati okkar er skynsamlegasta leiðin er sú að ríkið leiti samninga um yfirtöku á einkahlutafélaginu Speli og þar með öllum skuldbindingum þess. Með því væri lúkningu þeirra samninga sem gerðir voru við Spöl ehf. árið 1995 flýtt.  Þá yrði samhliða tekin ákvörðun um að fella niður veggjöldin í göngunum en í vegáætlun hvers árs yrði gert ráð fyrir framlagi til að standa undir rekstri ganganna eins og öðrum vegamannvirkjum og greiðslu áhvílandi lána vegna framkvæmdarinnar til ársins 2018. Nú munu lán Spalar ehf. nema um 3,9 milljörðum, en þar af er m.a. lán við lífeyrissjóði um 2,7 milljarðar króna og lánstími þeirra til ársins 2018.  Rekstrarkostnaður Hvalfjarðarganga eru um 200 mkr. á ári, en niðurfelling veggjalds myndi lækka kostnað af rekstri ganganna.

Hvalfjarðargöngin eru hluti almenna þjóðvegakerfis landsins

Þó nauðsynlegt hafi verið talið á sínum tíma að fjármagna Hvalfjarðargöng með gjaldtöku eru nú breyttir tímar. Fyllilega er tímabært að endurskoða gjaldtökuna um Hvalfjarðargöngin. Þau eru löngu orðin hluti almenns vegakerfis og því ber að leita allra leiða til að lækka gjaldið verulega eða fella alveg niður. Það er ekkert jafnræði í því að íbúar Akraness, Borgarfjarðar, Vesturlands og reyndar allra sem eru háðir tíðum ferðum um göngin séu skattlagðir sérstaklega til fjármögnunar almennra þjóðvega í landinu.

Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri – grænna í Norðvesturkjördæmi

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 12:18:02 / vgakranes

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs Akranesi og nágrenni, haldinn 22. október 2007, leggur áherslu á að ríkið geri FVA kleift að sinna skyldum sínum gagnvart nemendum á starfsvæði skólans. Nú er staðan sú að skólinn fær ekki fjárframlög með öllum þeim nemendum sem hann sækja samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008.
 
Því ber að fagna að nemendum hefur fjölgað við skólann.  Mikilvægt er að áfram verið hægt að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu með því að tryggja nægt fjármagn til skólans.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 19:13:28 / vgakranes

Bókun minnihluta á fundi menningamála og safnanefndar 10.10.2007

Undirritaðir fulltrúar í menningarmála og safnanefnd krefjast þess að strax verði tekin ákvörðun um hvað gera skuli í húsnæðismálum bókasafns og héraðsskjalasafns.

Það er algerlega ólíðandi staða sem komin er upp í húsnæðismálum þessara tveggja stofnana. Frá því að horfið var frá áformum um að færa bókasafn og skjalasafn hefur ekkert gerst og á meðan hefur húsnæði safnanna grotnað niður svo að í óefni stefnir. Þetta er algerlega óviðunandi. Strax verður að bregðast við til að forðast menningarsögulegt stórslys.

Leggjum við til að Skjalasafni Akraness verði tafarlaust fundið  viðunandi húsnæði og þannig verði  mikilvægum gögnum um sögu Akraness bjargað undan þeirri bráðu hættu sem nú vofir yfir þeim.

Hjördís Garðarsdóttir (sign)
Valgarður Lyngdal Jónsson (sign)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 11:37:59 / vgakranes

Veitum þeim vernd!

Birti hér með góðfúslegu leyfi höfundar, Toshiki Toma, grein sem er á blogginu hans!
 

Nú stendur yfir norrænt átak sem ber yfirskriftina ,,Veitum þeim vernd!“ eða ,,Keep them safe“. Átakinu er ætlað að vekja athygli á stöðu hælisleitenda á Norðurlöndum en tuttugu norræn félagasamtök, m.a. Mannréttindaskrifstofa Íslands, Íslandsdeild Amnesty International og Rauði Kross Íslands, standa að undirskriftasöfnun þar sem stjórnvöld eru hvött til að virða og vernda réttindi flóttafólks.

Í tilefni af átakinu langar mig til að vekja athygli á að meðferð hælismála á Íslandi er ekki eins og best verður á kosið. Eins og kerfið er í dag þá hefst meðferðin með því að lögreglan tekur skýrslu af hælisleitandanum, síðan er athugað hvort annað land ber ábyrgð á því að vinna hælisumsóknina. Ef Ísland verður að fjalla um málið þá fer Útlendingastofnun yfir umsóknina, aflar gagna og ákveður síðan hvort umsækjandanum er veitt hæli eða ekki.

Þeirri ákvörðun getur umsækjandi svo áfrýjað til Dómsmálaráðuneytis sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna. Ráðuneytið fer þá yfir ákvörðun Útlendingastofnunar og sker endanlega úr um hvort veitt er hæli eða ekki. Þessa ákvörðun getur umsækjandi síðan borið undir dómstóla, en þó ekki synjunina sem slíka heldur aðeins málsmeðferðina.

Það sem mig langar að vekja athygli á hér er að fólk fær ekki lögfræðiaðstoð við mál sitt meðan Útlendingastofnun fjallar um það. Þegar ákvörðun um synjun er áfrýjað á hælisumsækjandi rétt á takmarkaðri lögfræðiaðstoð en þetta er oft meira ,,pappírsvinna“ fremur en persónuleg aðstoð við einstaklinginn.

Kveðið er á um andmælarétt eftir endanlega synjun frá Dómsmálaráðuneyti í lögum, þ.e. að hælisleitandi getur höfðað mál fyrir dómsstólum en þetta er í fyrsta sinn í öllu ferlinu þar sem umsækjandi fær ,,faglega og persónulega“ lögfræðiaðstoð. Seint er betra en aldrei eða hvað?

Í lögunum segir: ,,Málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið frestar ekki framkvæmd hennar”. Þannig að þótt hælisleitandi höfði mál fyrir dómsstólum getur hann verið fluttur úr landi áður en dómur fellur. Og ef hann er fluttur úr landi fellur málið niður þar sem enginn á lengur lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr ágreiningsefninu.
Ég veit ekki hve margir hafa farið með mál sín fyrir dómstóla en ég þekki persónulega dæmi þess að umsækjandi var fluttur úr landi rétt áður en málið var tekið fyrir.

Það er merkilegt hversu stjórnvöld flýta sér að framkvæma brottvísun umsækjenda eftir að hafa stundum látið þá bíða á annað ár eftir úrskurði. Óttast yfirvöld að dómsstólar komist að annarri niðurstöðu en Dómsmálaráðuneytið? Ég vek athygli á því að eftir því sem ég best veit hefur ennið ekki fallið dómur varðandi synjun stjórnvalda um hæli.

Mér vitandi eru nokkrir menn nú með mál varðandi synjun fyrir dómstólum. Ég vona innilega að þeir verði ekki fluttir úr landi, í það minnsta ekki áður en dómur fellur og hvet almenning til að fylgjast með því að réttur þeirra til að fá skorið úr sínum málum fyrir dómstólum sé virtur.

(Fyrst birtist í Fréttablaðinu 5. október 2007)


Vinsamlegast takið þátt í undirskriftasöfnun!!

http://www.keepthemsafe.org/

 http://www.toshiki.blog.is/blog/toshiki/entry/339597/#comment713666

 

kv. Hjördís


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 12:03:50 / vgakranes

Bókun varabæjarfulltrúa VG á bæjarstjórnarfundi 8.október.2007

Á bæjarstjórnarfundi þann 8. október lagði varabæjarfulltrúi VG, Sigurður Mikael Jónsson fram eftirfarandi bókun um málefni Hitaveitu Akraness og Borgafjarðar og Orkuveitur Reykjavíkur. 

"Við horfum í dag fram á það að Hitaveita Suðurnesja verði á næstu dögum einkavædd. Það er, að hluti OR verði seldur inn í REI. Nú er Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar dótturfyrirtæki OR, sem á 79,3% í HAB á móti  20,7% hluta ríkisins. Í tillögu að fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að ríkið selji sinn hlut. 

Það sem hóf þetta ferli allt sem við nú horfum fram á er sala ríkisins á 15% hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja. 

Það hlýtur því að vera hagur Akurnesinga að  ekki verði af hlutafélagavæðing Orkuveitunnar og komið verði í veg fyrir að Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar fari sömu leið og Hitaveita Suðurnesja.

Ég skorar á bæjarstjórn og fulltrúa Akranesskaupstaðar í stjórn Orkuveitunnar að leggjast gegn markaðsvæðingar OR og standa þar með vörð um hagsmuni bæjarbúa."

Sigurður Mikael Jónsson (sign)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 18:56:32 / vgakranes

Ályktun bæjarmálafunds VG Akranesi um málefni OR

Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi mótmælir harðlega þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem viðgengist hafa innan Orkuveitu Reykjavíkur og almenningur hefur orðið vitni að síðustu daga og vikur. Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki liggur svo mikið á að framselja eignir almennings í hendur örfárra auðmanna að það er ekki ráðrúm til að stunda lýðræðisleg vinnubrögð. Allt stefnir þetta í þá átt að markaðsvæða orkugeirann eins og samþykktir Sjálfstæðisflokksins kveða á um, en ferlið virðist ekki þola dagsljós hvað þá heilbrigð skoðanaskipti.
 
Þess í stað virðist græðgi ráða för þar sem einstaklingar maka krókinn í ferlinu. Mýmörgum spurningum er enn ósvarað, en eigendur Orkuveitunnar, sem eru íbúar Reykjavíkur, Akraness og Borgarbyggðar, eiga skýlausa kröfu um upplýsta umræðu og aðgengileg svör. Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi skorar á bæjarstjórn að gæta hagsmuna bæjarbúa og almennings alls og standa vörð um grunnþjónustuna og samfélagslegar eignir gegn óheftri græðgisvæðingu

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 21:26:54 / vgakranes

Afnemum dauðarefsinguna!


 

Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í október 2007 verður lögð fram ályktun um að aftökur verði stöðvaðar um heim allan. Talið er að ályktunin verði fyrsta skrefið í átt að afnámi dauðarefsingarinnar.

 

World coalition against the death penalty

 

Það verður stór áfangi í baráttunni fyrir heimi án dauðarefsingar ef Sameinuðu þjóðirnar samþykkja að stöðva aftökur á heimsvísu. Amnesty International og Alþjóðasamtök gegn dauðarefsingunni (World Coalition against the death penalty) hvetja nú til stuðnings við ályktunina.

Nú þegar hafa 5 milljónir manna skrifað undir alþjóðlega bænaskrá samtakanna.

 

Leggðu baráttunni lið og skrifaðu undir!

 

Dauðarefsingin er hin endanlega illa, ómannlega og vanvirðandi meðferð. Hún brýtur gegn réttinum til lífs.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 14:01:10 / vgakranes

Ný heimasíða

Við vinnum nú að því að koma upp nýrri heimasíðu fyrir VG á Akranesi.

 Hún er á www.vgakranes.com þá höfum við einnig fengið netfangið vgakranes@vgakranes.com

Endilega kíkið á síðuna og takið þátt í að gera hana betri....

 kv. Hjördís


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 11:18:19 / vgakranes

Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn 9. ágúst

Íslenskar friðarhreyfingar standa að kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn
fimmtudaginn 9.ágúst næstkomandi kl. 22:30

Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar
Hírósíma og Nagasakí og lögð er áhersla á kröfuna um friðsaman og
kjarnorkuvopnalausan heim.

Nú eru liðin sextíu og tvö ár frá kjarnorkuárásunum á Hírósíma og Nagasakí en
þær voru 6. og 9.ágúst 1945. Þetta er í tuttugasta og þriðja skiptið sem kertum
er fleytt á Tjörninni í Reykjavík af þessu tilefni.

Safnast verður saman við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan
22:30 en þar mun Gunnar Hersveinn heimspekingur flytja stutt ávarp áður en
kertunum verður fleytt. Fundarstjóri verður Heiða Eiríksdóttir tónlistarmaður.

Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum. Kertin kosta 500 kr.
hvert eða 3 saman 1200 kr.

Á sama tíma verður einnig kertafleyting á Akureyri.

Samstarfshópur friðarhreyfinga:

Félag leikskólakennara.
Friðar og mannréttindahópur BSRB
Friðar og mannréttindanefnd Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar
Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna
Samtök hernaðarandstæðinga
SGI á Íslandi (Friðarhópur búddista)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 10:25:48 / vgakranes

Sumarstarfið - mannréttindamál

Hæ öll.

 það sem það er ekki mikið að gerast hjá okkur á Akranesi í augnablikinu mun ég nýta sumarið til að benda ykkur á ýmislegt sem er að gerast í umheiminum og leiðir til að bregðast við.

Fyrst og fremst vil ég hvetja ykkur til að kynna ykkur það sem Amnesty International www.amnesty.is stendur fyrir og taka þátt í baráttu fyrir mannréttindum á þeim grundvelli.

En að auki mun ég benda ykkur á hin ýmsu samtök sem hafa baráttu fyrir mannréttindamálum að leiðarljósi.

Bréfið sem hér fylgir fékk ég í dag en það fjallar um Suður Kóreubúana 23 sem nú eru í haldi í Afganistan.

kv. Hjördís

Dear friends,

23 South Korean aid workers, most of them young women, have just been taken hostage by Taliban fighters in Afghanistan, who are threatening to execute them this week. Not only are these aid workers' lives at stake, but their execution could trigger a mass evacuation of life-giving humanitarian aid from all of Afghanistan.

The situation is desperate, but there is hope. The Taliban are all from the 'Pashtun' ethnic group, and observe a strict code called Pashtunwali – the "way of the Pashtuns". This code demands, above all else: "hospitality to all, especially guests and strangers". There are rumours of infighting among the Taliban over these kidnappings, because they clearly violate the code.

A global outcry for the Taliban to follow their own code would certainly be covered by media in Afghanistan and Pakistan where the Taliban are based – creating more local pressure on them to free their prisoners. But these hostages are living under a 24 hour death sentence. We have seconds not minutes to act. Sign the petition below, forward this email, and let's report a truly powerful outcry to local journalists:

l('http://www.avaaz.org/en/honour_the_afghan_code/?cl=14553422');"> http://www.avaaz.org/en/honour_the_afghan_code

Pashtunwali has real power among ordinary people in Afghanistan. In 2003 Bettina Goislard, 29, was shot by Taliban gunmen while she was working for the UN High Commission for Refugees in the town of Ghazni, near where the Korean aid workers were kidnapped. Incensed by her murder, local people chased down the gunmen and beat them before handing them over to the police -- then they gathered up her body and marched several hundred miles to Kabul to show their sorrow to the world.

Recently, global pressure helped free BBC reporter Alan Johnston from his captivity in Gaza. It can be amazing what happens when we speak together around the world. So let's try our best, for these 23 young people and their families, and the millions of Afghans who need their aid -- With hope,

Ricken, Iain, Graziela, Tom, Paul and the rest of the Avaaz Team


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 17:16:01 / vgakranes

Hlýnun Jarðar - Bregðumst við!

Dear climate-saver,

Our campaign against global warming is on fire! World leaders meet at the G8+5 summit this week--and they're listening to us. Friday morning, we banged boxes of 265,000 names down on the top German negotiator's table in Berlin. Taken aback, he promised to bring our voice into the negotiations, and said he'd track how fast our petition grows. On Saturday, with another 10,000 signatures overnight, we marched at the head of the climate march in Rostock, with tens of thousands peacefully demanding urgent action. Now we're in touch with top officials from France, the UK and Brazil, all following our campaign as they decide on a strong stand.

Let's turn the heat up even higher. Can you help us get to 333,333 voices for change--the biggest global climate petition ever--before the summit decision? One last push, together, to avert a planetary catastrophe. Take a moment and tell five friends to go to this page-- 

http://www.avaaz.org/en/climate_summit

The energy here in Germany is electric. Every few hours, new reports come in as governments manoeuvre. Amidst the politics, our campaign draws a clear line: a swift global agreement with binding emissions targets.

When we met with Chancellor Angela Merkel's top representative who chairs the talks, he promised us Germany wouldn't compromise-- then on Sunday Merkel came through for us, the Brits followed suit, and now Brazil and China have joined the call for a global UN-led process. Bush has started to move but his proposals would be a step back, the US people and Congress are already way ahead of him.

The summit leaders can tell a global movement is brewing. Our petition, this simple list of names from every corner of the globe, is a sign politicians can see and touch. These talks always come down to the wire-- so it's crucial for world leaders to know how much the global public wants them to stop the climate crisis.

The summit opens Wednesday, ends Friday. This is crunch time. So just for a moment, put aside whatever you're doing and help us get to a third of a million signatures-- urge your friends and family to sign the petition here:

l('http://www.avaaz.org/en/climate_summit?cl=10705860');"> http://www.avaaz.org/en/climate_summit

We know leaders are watching. Let's make their jaws drop.

With hope,

Ricken, Paul, Ben, Graziela, Iain, Hannah, Galit and the whole Avaaz team

PS: For more information about the G8 summit and the climate change negotiations, see here:
http://www.ft.com/indepth/climatechange

And for more about Avaaz's work on climate change at the G8 see:
http://www.avaaz.org/blog/en/climate_change/

 (Kveðja Hjördís)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 13:41:35 / vgakranes

Sigurhátíð VG í Borgarnesi

Sigurhátíð VG í Borgarnesi 2. júní n.k.

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Borgarbyggð efnir til fjölskyldusamkomu kl. 14.00 laugardaginn 2. júní n.k. í Skallagrímsgarði í Borgarnesi í tilefni glæsilegs kosningasigurs flokksins 12. maí s.l.

Dagskrá hátíðarinnar verður í grófum dráttum eftirfarandi:

Safnast verður saman í Skallagrímsgarði kl. 14.00 og genginn söguhringurinn undir leiðsögn. ( um það bil 1 klst.)

Grillað í Skallagrímsgarði. Þátttakendur þurfa að hafa með sér grillmat, meðlæti, drykkjarföng og áhöld. Kol verða á staðnum.

Harmonikkuleikur, söngur, ávörp og upplestur.

Allt stuðningsfólk VG velkomið.

Efstu frambjóðendur flokksins í kjördæminu munu mæta, ásamt Steingrími J. Sigfússyni og eða öðrum úr forystusveit flokksins.

Félagar, fjölmennum og gerum okkur glaðan dag saman.

Stjórn VG í Borgarbyggð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 16868